Auður Embla 3 ára

Auður Embla 3 ára

Í dag þann 14. nóvember er Auður Embla 3 ára og héldum við upp á daginn hennar hér í Krílakoti í dag.

Auður Embla málaði á kórónuna sína og við flögguðum íslenska fánanum henni til heiðurs.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn ásamt fleiri lögum.

Eftir sönginn bauð hún öllum á Hólakoti upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Auði Emblu og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn.

Kveðja frá öllum í Krílakoti.