Ásdís Inga 3 ára

Ásdís Inga 3 ára

Í dag 18. apríl héldum við upp á 3 ára afmælið hennar Ásdísar Ingu en hún á afmæli þann 19. apríl. Hún málaði sér kórónu, flaggaði íslenska fánanum.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana  afmælissönginn og hún blés á kertin þrjú.

Eftir sönginn bauð Ásdís Inga öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Ásdísi Ingu og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn frá öllum á Skakkalandi.