Arnór Darri 3 ára

Arnór Darri 3 ára

Í dag héldum við upp á 3 ára afmæli Arnórs Darra en hann á afmæli þann 26. júlí. 

Arnór Darri málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin þrjú.

Eftir sönginn bauð Arnór Darri öllum á Skakkalandi uppá ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Arnóri Darra og fjölskyldu hans til hamingju með daginn frá öllum í Krílakoti.