Í dag 15. maí varð Agla Katrín 4 ára.
Hún málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin fjögur.
Eftir sönginn bauð Agla Katrín öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Öglu Katrínu og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn frá öllum á Skakkalandi.
Karlsrauðatorg 23 | 620 Dalvík
|
Opnunartími frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi barna: 460-4950 / krilakot@dalvikurbyggd.is