Agla Katrín 3. ára

Agla Katrín 3. ára

Á sunnudaginn þann 15. maí varð hún Agla Katrín 3 ára og héldum við upp á daginn hennar þann 16. maí. Hún bjó sér til kórónu. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn. Eftir sönginn bauð Agla Katrín öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr afmæliskörfunni. Við óskum Öglu Katrínu og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skakkalandi