þann 12. janúar verður Ægir Eyfjörð 4 ára og héldum við uppá afmælið hans í dag hér í Krílakoti.
Ægir Eyfjörð málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin fjögur.
Eftir sönginn bauð Ægir Eyfjörð öllum á Skakkalandi uppá ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Ægi Eyfjörð og fjölskyldu hans til hamingju með daginn frá öllum á Skakkalandi.