Aðstoðarleikskólastjóra og leikskólakennara vantar í Krílakot og Kátakot

Aðstoðarleikskólastjóra og leikskólakennara vantar í Krílakot og Kátakot

Dalvíkurbyggð auglýsir eftir aðstoðarleikskólastjóra og leikskólakennara frá ágúst 2014. Leitað er eftir einstaklingum með mikinn metnað og áhuga á að takast á við fjölbreytt og gefandi starf. Skólar í Dalvíkurbyggð eru Grænfánaskólar og starfa eftir hugmyndafræði Uppbyggingastefnunnar. Gildi sviðsins eru Virðing, Jákvæðni og Metnaður. Dalvíkurbyggð er fjölmenningarlegt samfélag.

Umsóknarfrestur er til 21. apríl 2014.

Aðstoðarleikskólastjóri (100%)

Menntunar- og hæfniskröfu:

  • Leikskólakennaramenntun
  • Áhuga á fræðslu barna og velferð þeirra
  • Góð skipulags- og leiðtogahæfni
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum og sterk þörf til að ná árangri í starfi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Stjórnunarhæfileikar, þekking og reynsla af rekstri og stjórnun er kostur
  • Hreint sakavottorð

Leikskólakennari

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og sveigjanleiki
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhuga á fræðslu barna og velferð þeirra
  • Tilbúin/n að takast á við nýjar og fjölbreyttar áherslur í leikskólastarfi
  • Hreint sakavottorð

Umsóknum, ásamt ferilskrá, skal skilað til leikskólastjóra, Drífu Þórarinsdóttur, á netfangið drifa@dalvikurbyggd.is

Nánari upplýsingar veitir Drífa í síma 466 1372 og á netfangið drifa@dalvikurbyggd.is