Adam Breki 3. ára

Adam Breki 3. ára

Í morgun héldum við upp á afmælið hans Adams Breka sem verður 3. ára þann 13. apríl. Adam Breki byrjaði daginn á því að fá kórónuna sína og fór út og flaggaði. Síðan sungu allir fyrir hann í tilefni dagsins og hann blés á kertin sín þrjú. Eftir sönginn bauð hann öllum upp á ávexti úr afmæliskörfunni. Einnig var hann þjónn dagsins.Við óskum honum innilega til hamingju með daginn.