Adam 3 ára

Adam 3 ára

Á morgun þann 24. janúar verður Adam 3 ára og héldum við upp á daginn hans hér í Krílakoti í dag.

Adam málaði á kórónuna sína og við flögguðum íslenska fánanum honum til heiðurs.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn ásamt fleiri lögum.

Eftir sönginn bauð hann öllum á Hólakoti upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Adam og fjölskyldu hans til hamingju með daginn.

Kveðja frá öllum í Krílakoti.