5 ára börnin fara í kveðjuferð

5 ára börnin fara í kveðjuferð

Í tilefni þess að 5 ára börnin eru að færast yfir á Fagrahvamm fóru þau í nokkurs konar kveðjuferð í morgun. Eftir að hafa verið á Fagrahvammi í morgun fóru þau með 'nesti og nýja skó' upp í skógarreitinn neðan við Brekkusel. Þar ætla þau svo að vera fram yfir hádegi, leika sér, rannsaka náttúruna og njóta góða veðursins.