17. júní skrúðganga leikskólabarna á Dalvík

Á morgun, 16. júní, fara börn af leikskólunum á Krílakoti og Fagrahvammi í sína árlegu 17. júní skrúðgöngu. Skrúðgangan hefst upp á Krílakoti kl. 09.30, þar sem börn af leikskólanum safnast sama og halda niður á Fagrahvamm þar sem börnin þar bætast í hópinn. Síðan heldur þessi myndarlega skrúðganga af stað upp að Ráðhúsi þar sem áætlað er að börnin stoppi við í skotinu fyrir framan húsið upp úr kl. 10:00 og syngi 17.júní söngva sem þau hafa verið að æfa. Þegar þeirri söngstund er lokið liggur leið þeirra upp á Dalbæ þar sem þau munu syngja fyrir íbúa þar. Við hvetjum alla sem geta að koma hingað að Ráðhúsinu upp úr kl. 10:00 á morgun, 16. júní, og hlusta á þessi frábæru börn syngja og skemmta sér og okkur.