Í dag héldum við upp á 3 ára afmælið hennar Wiktoriu, en hún á afmæli í lokunni þann 21. júlí. Wiktoria málaði á kórónuna sína. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn, hún hefur stækkað í nótt og þetta er afmæliskveðja. Við flögguðum að sjálfsögðu í tilefni dagsins. Eftir sönginn fengu allir sér ávexti úr ávaxtakörfunni. Við óskum Wiktoriu og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn. Kveðja frá öllum í Krílakoti.