Víóla Mjöll 5 ára

Víóla Mjöll 5 ára

Víóla Mjöll varð 5 ára 24. nóvember. Hún var svo óheppin að vera lasin á afmælisdaginn en mætti galvösk til okkar í dag svo við héldum upp á afmælið hennar þá. Hún bjó til kórónu, við sungum afmælissönginn fyrir hana, hún blés á afmæliskertin 5 og bauð börnunum svo upp á ávexti. Hún flaggaði svo íslenska fánanum í tilefni dagsins. Við óskum Víólu Mjöll og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með áfangann.