Vinsamlegast drepið á bílunum!!!

Vinsamlegast drepið á bílunum!!!

Nú þegar farið er að kólna verður það stundum freisting að halda bílnum í gangi á meðan skotist er inn með barnið í leikskólann. Þess vegna viljum við minna á að bíll í lausagangi mengar. Bæði bensín- og díselvélar gefa frá sér skaðleg efni fyrir heilsu fólks og stórir bílar menga meira en litlir. Útblásturinn frá bílum leitar niður til jarðar en það er einmitt sú hæð sem litlu börnin okkar anda í þegar þau eru úti. Það er því allra hagur að drepa á bílunum utan við leikskólann og stuðla þannig að góðu lofti fyrir litlu börnin okkar.

(Fengið að láni hjá www.hjallastefnan.is)