Í dag, þann 22. október héldum við upp á 2 ára afmælið hans Viggós hér í Krílakoti.
Viggó málaði á kórónuna sína.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn, hann hefur stækkað í nótt og þetta er afmæliskveðja.
Við flögguðum að sjálfsögðu í tilefni dagsins.
Eftir sönginn fengu allir sér ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Viggó og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.
Kveðja frá öllum í Krílakoti