Vetrarleikar Krílakots og Fagrahvamms

Í dag voru vetrarleikar Krílakots og Fagrahvamms haldnir í kirkjubrekkunni í blíðskapar veðri.  Snjótroðari skíðafélagsins hafði farið um brekkuna í morgun og gert hana klára fyrir okkur og þökkum við innilega fyrir það.  5 bekkur úr Dalvíkurskóla kom og skemmti sér með ásamt því að aðstoða okkur í brekkunni.  Hilmar Guðmundsson bæjarfulltrúi setti leikana og renndi sér fyrstu ferðina, þökkum við honum fyrir þátttökuna.  Myndir koma inn á mánudaginn.