Vetrarleikar

Vetrarleikar

Á morgun (fimmtudag) verða Vetrarleikar Krílakots og Kátakots haldnir í Kirkjubrekkunni. Leikarnir hefjast kl. 9:30 með því að Arnar Símonarson heiðursgestur leikana rennir sér fyrstu bununa. Síðan verður haldið upp í Safnaðarheimili og gætt sér á kringlum og kakói.

Foreldrar og fjölskyldur barnanna eru að sjálfsögðu velkomnar til að gleðjast með okkur.