Í dag 3. maí héldum við upp á 3 ára afmælið hennar Valgerðar Fríðar hér í Krílakoti..
Valgerður Fríður málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin þrjú.
Eftir sönginn bauð Valgerður Fríður öllum á Skakkalandi uppá ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Valgerði Fríði og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn frá öllum í Krílakoti.