Valgerður Fríður 2. ára

Valgerður Fríður 2. ára

Í gær þann 3. maí átti hún Valgerður Fríður 2. ára afmæli. Hún var búin að mála sér kórónu og setti hana upp í tilefni dagsins. Í ávaxtastundinni bauð hún öllum á Skýjaborg upp á ávexti úr afmælisávaxtakörfunni og sungum við fyrir hana afmælissönginn, hún hefur stækkað í nótt og þetta er afmæliskveðja. Flögguðum fyrir hana í tilefni dagsins.
Við óskum Valgerði Fríði og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skýjaborg.