Þann 21. mars varð Valgerður Freyja 6 ára og af því tilefni
héldum við upp á afmælið hennar hér í Kátakoti í dag.
Valgerður Freyja bjó sér til fallega kórónu, blés á kertin 6 og
bauð svo öllum í Sólkoti upp á ávexti úr afmæliskörfunni.
Að því loknu fór hún út og flaggaði fánanum í tilefni dagsins.
Við óskum Valgerði Freyju og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.
Bestu kveðjur frá öllum í Kátakoti.