Í dag 29. maí á Vala Katrín 3. ára afmæli og héldum við upp á daginn hennar hér í Krílakoti..
Vala Katrín málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin þrjú.
Eftir sönginn bauð Vala Katrín öllum á Hólakoti upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Völu Katrínu og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn frá öllum á Hólakoti