Þann 17. apríl héldum við upp á 4 ára afmælið hennar Urðar hér í Krílakoti..
Urður málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin fjögur.
Eftir sönginn bauð Urður öllum á Hólakoti uppá ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Urði og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn frá öllum í Krílakoti.