Þann 30. janúar átti hún Unnur Marý 4. ára afmæli og að því tilefni héldum við upp á daginn hennar.
Unnur Marý málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin fjögur.
Eftir sönginn bauð Unnur Marý öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr afmæliskörfunni.
Við óskum Unni Marý og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skakkalandi.