Í dag héldum við upp á 3. ára afmlælið hennar Unnar Marýjar en hún á afmlæi á sunnudaginn 30. janúar. Hún bjó sér til kórónu og fór út og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og hún blés á kertin þrjú. Eftir sönginn bauð Unnur Marý öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr afmælisávaxtakörfunni. Við óskum Unni Marý og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skakkalandi.