Í dag 14. febrúar átti Unnar Marinó 3. ára afmæli og að því tilefni héldum við upp á daginn hans.
UnnarMarinó málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin þrjú.
Eftir sönginn bauð Unnar Marinó öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr afmæliskörfunni.
Við óskum Unnari Marinó og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skakkalandi.