Úlfur Berg 3 ára

Úlfur Berg 3 ára

Í dag 8. maí varð Úlfur Berg 3 ára.

Hann málaði sér kórónu, flaggaði íslenska fánanum.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin þrjú.

Eftir sönginn bauð Úlfur Berg öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Úlfi Berg og fjölskyldu hans til hamingju með daginn frá öllum á Skakkalandi.