Tryggvi 3. ára

Tryggvi 3. ára

Í gær þann 22 maí átti hann Tryggvi 3. ára afmæli en við héldum upp á afmælið í dag mánudag. Hann bjó sér til kórónu og fór út og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin þrjú. Eftir sönginn bauð Tryggvi öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr afmæliskörfunni. Við óskum Tryggva og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skakkalandi.