Í dag 11. maí varð Tómas Ingi 3 ára.
Hann málaði sér kórónu, flaggaði íslenska fánanum.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin þrjú.
Eftir sönginn bauð Tómas Ingi öllum á Hólakoti upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Tómasi Inga og fjölskyldu hans til hamingju með daginn frá öllum á Hólakoti.