Tjörvi Þeyr 3 ára

Tjörvi Þeyr 3 ára
Tjörvi Þeyr 3 ára

Á mánudaginn, 9. október, varð elsku Tjörvi Þeyr okkar þriggja ára. Við héldum daginn hans hátíðlegan eins og okkar er von og vísa. Hann málaði og skreytti kórónu sem hann var með á afmælisdaginn. Við sungum fyrir hann afmælissönginn, hann blés á kertin þrjú og bauð svo upp á ávexti úr afmæliskörfunni. Í útiverunni flaggaði hann svo íslenska fánanum í tilefni dagsins. Við óskum Tjörva og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.