Fimmtudaginn 5. maí varð Þuríður Oddný 3 ára og héldum við upp á daginn hennar þann dag. Hún bjó sér til kórónu og fór út og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn. Eftir sönginn bauð Þuríður Oddný öllum á Hólakoti upp á ávexti úr afmæliskörfunni. Við óskum Þuríði Oddný og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Hólakoti.