Þann 3. september varð Þorsteinn Matthew 2 ára og héldum við upp á daginn hans hér í Krílakoti.
Þorsteinn málaði á kórónuna sína og við flögguðum íslenska fánanum honum til heiðurs.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og eftir
sönginn bauð hann öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Þorsteini Matthew og fjölskyldu hans til hamingju með daginn.
Kveðja frá öllum í Krílakoti.