Þann 29. mars varð Þorsteinn Jakob 5 ára. Hann byrjaði daginn á því að búa sér til kórónu síðan í ávaxtastund bauð hann krökkunum upp á ávexti og blés svo á kertin og að lokum sungu börnin í tilefni dagsins. Hann fór líka út og flaggaði og var þjónn dagsins.
Við óskum honum til hamingju með afmælið frá öllum á Hólakoti.