Í dag 21. nóvember á Þorri Jón 2. ára afmæli og héldum við því upp á daginn hans.
Þorri Jón málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin tvö.
Eftir sönginn bauð Þorri Jón öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr afmælisávaxtakörfunni.
Við óskum Þorra Jóni og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skakkalandi.