Þorrablót

Á Bóndadaginn (nk. föstudag) munum við halda þorrablót hér á Krílakoti. Og eru börnin núna í óða önn að búa sér til 'kórónur' til að bera þennan dag.

Á þorrablótinu verður boðið upp á hefðbundinn þorramat; þ.e. harðfisk, hákarl, flatkökur, hrútspunga, slátur, saltkjöt o.fl.