Þann 24. september varð Þórlaug Diljá 2 ára og héldum við upp á daginn hennar hér í Krílakoti þriðjudaginn 30. september.
Þórlaug Diljá málaði á kórónuna sína og við flögguðum íslenska fánanum henni til heiðurs.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og eftir
sönginn bauð hún öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Þólaugu Diljá og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn.
Kveðja frá öllum í Krílakoti.