Í dag 16. september héldum við upp á 3. ára afmælið hennar Tanyu Rósar,
en hún á afmæli þann 17. september.
Tanya Rós málaði sér kórónu og skreytti hana. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og
hún blés á kertin þrjú. Eftir sönginn bauð hún öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr afmælisávaxtakörfunni.
Við óskum Tanyu Rós og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skakkalandi.