Í sumarleyfinu þann 22. júlí varð hann Sveinn Heiðar 5 ára
og af því tilefni héldum við veislu hér í Kátakoti í dag
Sveinn Heiðar bjó sér til fallega kórónu, blés á kertin 5 og
bauð svo öllum í Kátakoti upp á ávexti úr afmæliskörfunni.
Að því loknu fór hann út og flaggaði fánanum í tilefni dagsins.
Við óskum Sveini Heiðari og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.
Bestu kveðjur frá öllum í Kátakoti.