Sveinn Heiðar 3 ára

Sveinn Heiðar 3 ára

Í dag héldum við upp á 3 ára afmæli Sveins Heiðars en hann á afmæli þann 22. júlí. 

Sveinn Heiðar málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin þrjú.

Eftir sönginn bauð Sveinn Heiðar öllum á Hólakoti uppá ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Sveini Heiðari og fjölskyldu hans til hamingju með daginn frá öllum í Krílakoti