Vetrarleikarnir féllu niður í dag vegna snjóleysis.
Hólakot nýtti samt þann snjó sem var í kirkjubrekkunni og allir skemmtu sér konunglega
að renna sér í brekkunni og klifra á snjóhaugunum sem grafan hefur skilið eftir. Svo sáum
við líka þyrlu og það þótti afskaplega spennandi.
Skýjaborg og Skakkaland brugðu líka út af vananum og fóru í gönguferð í góða veðrinu.