Stóra upplestrarkeppnin í Árskógarskóla

Stóra upplestrarkeppnin í Árskógarskóla

Forkeppni Stóru upplestrarkeppninnar í Árskógarskóla fór fram þriðjudaginn 21. febrúar. Að venju var mikið um dýrðir og stóðu nemendur sig með stakri prýði. Að þessu sinni varð Sigríður Inga Rúnarsdóttir hlutskörpust og verður hún fulltrú Árskógarskóla í lokakeppninni sem fram fer í menningarhúsnu Bergi miðvikudaginn 14. mars kl. 14:00. Varamaður Sigríðar er Karen Eir Valsdóttir. Smelltu hér til að sjá fleiri myndir frá upplestrarkeppninni.