Starfsmannaskipti - skilaboð til foreldra

Starfsmannaskipti - skilaboð til foreldra

Hún Bogga, sem vinnur á Skýjaborg frá kl. 08-12, hefur ákveðið að skipta um starfsvettvang og þökkum við henni kærlega fyrir vel unnin störf undanfarin ár. Við hér á Krílakoti eigum eftir að sakna hennar mikið, bæði börn og fullorðnir. Síðasti dagur Boggu er í dag.

Við óskum henni alls hins besta 

Við látum fylgja með þessari frétt skilaboð frá henni Boggu sem hún hengdi upp hjá Skýjaborg í morgun:

Kæru foreldrar og ykkar yndislegu börn.

Þar sem ég hef ákveðið að skipta um vinnustað ákvað ég að skrifa nokkrar línur. Ég kveð þennan vinnustað með söknuði, þetta var erfið ákvörðun. Hér er góður andi, frábært starfsfólk sem er að gera frábæra hluti. Góður og skilningsríkur leikskólastjóri sem gott er að leita til. Á eftir að sakna litlu krílana sem er svo gott að knúsa, sakna þess að vera útbíuð í hafragraut og með hor á öxlinni.

                                                                                                                                                      Kveðja, Bogga