Sóley Elizabeth 5 ára

Sóley Elizabeth 5 ára

Þann 2 ágúst varð Sóley Elizabeth 5 ára. Þá voru allir í sumarfríi og því héldum við upp á afmælið hennar föstudaginn 18. ágúst. Hún bjó til glæsilega kórónu, við sungum fyrir hana afmælissönginn, hún blés á kertin 5 og bauð upp á ávexti. Hún flaggaði svo íslenska fánanum í tilefni dagsins. Við óskum Sóleyju Elizabeth innilega til hamingju.