Skólaskemmtun Árskógarskóla

Skólaskemmtun Árskógarskóla 2011 

Hin árlega skólaskemmtun verður fimmtudaginn 7. apríl næstkomandi kl. 19.30. Að venju verða ýmis skemmtiatriði sem nemendur hafa undirbúið.
Miðaverð fyrir 14 ára og eldri er kr. 800,-. Aðrir kr. 400,-. Frítt fyrir börn undir skólaaldri og nemendur Árskógarskóla.
Foreldrafélagið selur vöfflukaffi að lokinni sýningu. Verð: 600,- fullorðnir/300,- börn.
Allir velkomnir. Vonum að sem flestir láti sjá sig.

Nemendur Árskógarskóla