Skipulagsdagur 14. maí - leikskólinn lokaður

Skipulagsdagur 14. maí - leikskólinn lokaður

Samkvæmt skóladagatali er skipulagsdagur þann 14. maí nk. og er þá leikskólinn lokaður þann daginn. Þennan dag mun starfsfólk fá námskeið í uppeldi og menntun yngstu barna leikskólans. Auk þess mun það vinna að ýmsum málum eins og endurmati vetrarins, faglegri þróun skólastarfsins og skipulagi næstkomandi hausts.