Sigurður Nói 2. ára

Sigurður Nói 2. ára
Í dag héldum við upp á 2. ára afmælið hans Sigurðar Nóa.
Hann var búin að búa sér til kórónu og setti hana upp í tilefni dagsins. Í ávaxtastundinni og á söngfundi sungum við fyrir hann afmælissönginn, hann hefur stækkað í nótt og þetta er afmæliskveðja. Síðan bauð hann upp á ávexti ásamt Antoni Andra sem einnig er 2. ára í dag. Flögguðum fyrir þá í tilefni dagsins.
Við óskum Sigurði Nóa og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skýjaborg.