Þann 12. júní varð Sigríður Erla 6 ára. Hún bjó sér til kórónu, fór út og flaggaði og bauð upp á ávexti. Einnig var sungið fyrir hana afmælissönginn bæði á söngfundi og í afmælisstundinni. Hún var líka þjónn dagsins. Við óskum henni til hamingju með daginn frá öllum á Hólakoti.