Síðasti dagur opnu vikunnar á Krílakoti á morgun

Síðasti dagur opnu vikunnar á Krílakoti á morgun

Á morgun, föstudag, er síðasti dagur opnu vikunnar á Krílakoti. Hefðbundin dagskrá verður að mestu leiti á morgun, en helst mætti telja að öll börnin hittast saman kl. 09:00 á Skýjaborg á Söngfundi, börnin á Skýjaborg fara í gönguferð kl. 10:00. Á eldri deildunum verður frjáls leikur úti. Eftir hádegi býður svo Foreldrafélag Krílakots upp á veitingar á milli kl. 14:30 og 15:30.

Allir eru velkomnir, jafnt fjölskyldur barnanna sem og aðrir áhugasamir um leikskólastarf!