Samstarf Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar og leikskólanna

Samstarf Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar og leikskólanna

Tekin hefur verið upp sú nýbreytni hjá Tónlistarskóla Dalvíkur að
bjóða upp á forskólakennslu í elstu bekkjum leikskóla. Þuríður
Sigurðardóttir leikskólakennari hefur verið ráðin til að fara vikulega
í alla leikskóla í Dalvíkurbyggð, syngja með krökkunum, þjálfa þau í
rytma og öðrum undirstöðuþáttum undir frekari tónlistarkennslu.
Menningar- og viðurkenningasjóður menningarráðs Dalvíkurbyggðar
styrkti þetta verkefni um 250 þúsund kr sl. vor og verður því haldið
áfram fram að áramótum í það minnsta að sögn Kaldos Kiis skólastjóra.
Kaldo segir öllu máli skipta fyrir frekara tónlistarnám að þessi
grunnur sé kominn og hlúð sé vel að forskólakennslunni.