Í gær þann 10. september varð Rakel Erla 4 ára og
héldum við upp á daginn hennar hér í Kátakoti í gær.
Rakel Erla málaði á kórónuna sína og við
flögguðum íslenska fánanum henni til heiðurs.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og eftir
sönginn bauð hún öllum í Mánakoti upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Rakel Erlu og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn.
Kveðja frá öllum í Kátakoti.