Piparkökumálun

Piparkökumálun

Í aðdraganda jólaföndurs baka nemendur hinar ýmsu sortir af smákökum sem síðan eru á boðstólnum á hinu rómaða hlaðborði jólaföndursins. Eins og ávallt kom það í hlut yngstu nemendanna að skreyta piparkökurnar, að þessu sinni 1. - 4. bekkur, og gerðu börnin það af mikilli list. Voru kökurnar mjög litskrúðugar og mikil listaverk í mörgum tilfellum. Smelltu hér að neðan til að sjá fleiri myndir.